Esseyja er eins konar farmiði til Surtseyjar, eyjunnar í fjarska sem enginn má heimsækja nema í vísindalegum tilgangi. Í bókinni má finna myndlistarverk og ferðasögu Þorgerðar Ólafsdóttur sem fékk leyfi til að heimsækja eyjuna og skrásetja með aðferðum myndlistarinnar. Þar eru einnig fræðigreinar eftir konur frá fræða- og (umhverfis)vísindasviði sem hafa kynnst eyjunni meðal annars út frá sinni grein.





