2025Íkon gerð fyrir nýja ásýnd Þjóðkirkju Íslands. Hvert íkon stendur fyrir kristilegt og sammannlegt gildi. Hver og einn getur búið til sinn eiginn kross byggðan á sínum gildum á heimasíðu Þjóðkirkjunnar.Þjóðkirkjan
2025100 myndir fyrir jafn margar sögur eftir Eirík Jónsson. Myndunum var ætlað að bæta við auka snúningi á sögurnar.Andrými
2025Mörkun yfirlitssýningarinnar, Steina: Tímaflakk, sem haldin var á Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur. Steina: Tímaflakk
2025Risoprentuð lítil handbók (110x165 mm) eftir Chanel Björk Sturludóttur and Miriam Petru Ómarsdóttir Awad um fordóma og rasisma. Handbókinni var dreift í grunnskóla í Reykjavík.Litla handbókin um rasisma og fordóma í íslensku samfélagi
2024Mynd fyrir sýninguna Ljáðu mér vængi – Ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur sem er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningarLjáðu mér vængi
2023Esseyja er eins konar farmiði til Surtseyjar, eyjunnar í fjarska sem enginn má heimsækja nema í vísindalegum tilgangi. Í bókinni má finna myndlistarverk og ferðasögu Þorgerðar Ólafsdóttur sem fékk leyfi til að heimsækja eyjuna og skrásetja með aðferðum myndlistarinnar. Þar eru einnig fræðigreinar eftir konur frá fræða- og (umhverfis)vísindasviði sem hafa kynnst eyjunni meðal annars út frá sinni grein. Esseyja
2022Núningur fjallar um skynjun, mælingar, túlkun og mörk hins manngerða og náttúrunnar. Tímanum og færibandinu er veitt viðnám á meðan leitað er að vandfundnum skorti. Rykið þyrlast upp og orð þrífast ekki við þessar aðstæður.Núningur
2021Teikningar fyrir hátíðarherferð Nike ACG 2021. Karakterinn fangar töfra og forvitni íslenskrar náttúru.Nike ACG
2021Vatnslita- og blekmynd fyrir Universal thirst, letursmiðju sem sérhæfir sig í indverskum og latneskum leturgerðum, með höfuðstöðvar í Bangalore og Reykjavík.Universal Thirst
2021Grafísk hönnun og teikningar fyrir Mobile Home, plötu eftir GusGus. Teikningarnar fyrir hverja smáskífu mótuðu útlitsheiminn, sérkennileg og dreymin eyðimörk þar sem ekkert er eins og það sýnist.Mobile Home
2021Hönnun á plötu Tuma Árnasonar, Hlýnun, sem fjallar um tilvistarlega ógn mannkyns, hamfarahlýnun, með frjálsum djassi og tilraunakenndum spuna.Hlýnun
2021Klón: Eftirmyndasaga er bráðfyndin og nístandi ljóðsaga um ábyrgð mannsins gagnvart lífi á jörðinni, um dauða og endurfæðingu. Í bókinni er rakin ævisaga klónahundsins Samsonar Ólafssonar Moussaieff, en sú saga lætur engan ósnortinn. Texti bókarinnar er eftir Ingólf Eiríksson og myndir eftir Elínu Eddu.Klón: Eftirmyndasaga
2019A catalouge for Ásmundarsalur, an exhibition space in Reykjavík, containing short chapters about of the history behind the building and its location.Upp í hæstu hæðir
2019Gombri lifir er sjálfstæð framhaldsbók í myndasöguseríunni um Gombra, dularfulla veru í háskafullum heimi sem skeytir engu um örlög Móður Jarðar. Í nýju bókinni er stígandin þyngri, ábyrgðin meiri og kallast hún þannig á við ógnina sem raunverulega steðjar að Móður Jörð. Gombri lifir er ríkulega myndskreytt bókverk sem býður lesendum sínum skjól frá hversdeginum í hugvekju um náttúruna og lífið – á sama tíma og hún talar beint inn í samtímann.Gombri lifir
2018„Mig grunar að eitthvað hafi verið tekið frá mér – eitthvað sem ég veit ekki hvort ég hafi átt.“ Myndasagan Glingurfugl fjallar á ljóðrænan og hljóðlátan hátt um ferðalag tveggja fugla, Margrétar og Evu, til að endurheimta minningar þeirra og uppgötva eigið sjálf í dularfullum heimi sem er óvinveittur fuglum.Glingurfugl
2016Gombri er myndasaga um Gombra sem er orðinn leiður á drunganum sem umkringir hann og ákveður því að yfirgefa heimili sitt, Garðinn. Hann leggur af stað í langt ferðalag — staðráðinn í að snúa ekki aftur. Helstu umfjöllunarefni sögunnar eru náttúran, sannleikurinn og tilveran.Gombri