2019

Gombri lifir

Gombri lifir er sjálfstæð framhaldsbók í mynda­söguseríunni um Gombra, dularfulla veru í háskafullum heimi sem skeytir engu um örlög Móður Jarðar. Í nýju bókinni er stígandin þyngri, ábyrgðin meiri og kallast hún þannig á við ógnina sem raunverulega steðjar að Móður Jörð. Gombri lifir er ríkulega myndskreytt bókverk sem býður lesendum sínum skjól frá hvers­deginum í hugvekju um náttúruna og lífið – á sama tíma og hún talar beint inn í samtímann.

  • Ljósmyndir af bók:
    Leifur Wilberg Orrason
Grafísk hönnun
Teikning